Merki HSS

Merki HSS

HSS tók í notkun nýtt einkennismerki 1. júlí 2021

Hönnuðurinn Eva Hrönn Guðnadóttir á hönnunarstofunni Kríu gerði lógóið í samráði við starfshóp hér innanhúss á HSS.

Listaverkið Askur Yggdrasils - Lífsins tré eftir Erling Jónsson er í forgrunni, líkt og í fyrra merki, en fimm aðalgreinar þess tákna skilningarvitin fimm: sjón, heyrn, lykt, snertingu og bragð.

Þá má einnig sjá í merkinu vísun í æðakerfi líkamans ásamt því að það táknar hina margþættu þjónustu sem HSS veitir íbúum Suðurnesja.

Í nýrri hönnun var leitast við að einfalda form merkisins og letur, til að það sómi sér sem best á prenti, á rafrænu formi og öðrum merkingum.