Ung- og smábarnaverndar

Ungbarnavernd er opin alla virka daga frá 08:00 - 16:00. Símaþjónusta og tímapantanir eru alla virka daga frá 08:00 - 16:00 í síma 422-0500.

Markmið og áherslur
Markmið ungbarnaverndar er að fylgjast með vexti og þroska barnsins frá fæðingu til skólaaldurs. Foreldrum er veitt fræðsla og ráðgjöf um ýmis mál sem varða vöxt og þroska barna.

Áhersla er lögð á stuðning við fjölskylduna og að börnum séu búin sem best uppvaxtarskilyrði á hverjum tíma.  Hjúkrunarfræðingar og barnalæknar sjá um reglubundið eftirlit og ónæmisaðgerðir. 

Unnið er samkvæmt leiðbeiningum um ung- og smábarnavernd (throunarmidstod.is)

Foreldrum er ávallt velkomið að hafa samband við hjúkrunarfræðnga í ung- og smábarnavernd á milli skipulagðra skoðana. 

Mint er á 2 1/2 árs og 4 ára skoðanir barna, hægt er að panta tíma í síma 422-0500.

Í heilsuveru er mikið af hjálplegu efni fyrir foreldra um þroska, heilsu og umönnun.