Ný viðbragðsáætlun HSS

fimmtudagur, 20. febrúar 2020

Ný og uppfærð viðbragðsáætlun HSS hefur nú verið gefin út birt hér á vefnum í aðalvalmynd undir „Um HSS“. Áætlunin er unnin af Ölmu Maríu Rögnvaldsdóttur, framkvæmdastjóra hjúkrunar HSS, Andreu Klöru Hauksdóttur, yfirhjúkrunarfræðingi heilsugæslu HSS og Fjölni Frey Guðmundssyni, framkvæmdastjóra lækninga HSS, eftir forskrift frá sóttvarnalækni, almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og Landspítala.

Áætluninni er ætlað að segja fyrir um skipulag og stjórn aðgerða innan heilbrigðisstofnunarinnar í kjölfar atviks sem kallar á aukin viðbrögð starfsmanna stofnunarinnar.

Atvik getur verið af völdum slyss, náttúruhamfara, sjúkdómsfaraldurs, eiturs, mengunar eða af óþekktum uppruna. Við gerð áætlunarinnar er stuðst við lög um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007, lög um almannavarnir nr. 82/2008 og lög um sóttvarnir nr. 19/1997, einnig reglugerð nr. 817/2012 er varðar sóttvarnaráðstafanir.

Að auki styðst áætlunin við Alþjóðaheilbrigðisreglugerðina (IHR-2005) og Strategic framework for Emergency preparedness, WHO-2017.

Í inngangi áætlunarinnar segir að viðbragðsáætlun HSS sé ætlað að vera til leiðbeiningar um viðbragðsáætlanagerð HSS en ekki er um endanleg fyrirmæli að ræða. Ábyrgð á áætluninni er á höndum stjórnar HSS og hefur áætlunin verið send til umsagnar og samþykkt af sóttvarnalækni, almannavarnanefnd Suðurnesja og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.

Áætlunin skal endurskoðuð a.m.k. á fimm ára fresti, en yfirfarin árlega t.d. hvað varðar boðleiðir, gátlista og starfssvæði innan stofnunar. Ef miklar breytingar verða á starfsemi stofnunarinnar skal áætlunin þegar í stað endurskoðuð.