Skert þjónusta í heilsugæsluteymi 1 og 2 í sumar

miðvikudagur, 28. maí 2025
Skert þjónusta í heilsugæsluteymi 1 og 2 í sumar

Skert þjónusta verður í Teymi 1 og 2 frá 1. júní - 31. ágúst 2025 vegna sumarleyfa.

Almenn móttaka lækna, hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra er alla virka daga frá kl. 08:00 – 16:00. Læknar í teymum verða með opna tíma á heilsugæslunni svo hægt er að biðja sérstaklega um tíma hjá þeim.

Tímapantanir alla virka daga frá kl. 08:00 – 16:00 í síma 422-0500.

Hægt er að fá aðstoð varðandi ýmis erindi í símaráðgjöf hjúkrunarfræðinga. Dæmi um þessi erindi eru grunur um þvagfærasýkingu, ráðgjöf vegna kynsjúkdóma,  ferðamannabólusetningar, mat á alvarleika veikinda (ef óvissa er um hvort fólk þurfi að leita læknis). Hægt er að panta símatíma hjá hjúkrunarfræðingi alla virka daga kl. 8:00 – 12:00.

Læknavakt er frá kl. 15:30 - 20:00 virka daga en kl. 10:00 - 12:00 og 13:00 - 15:00 um helgar og helgidaga.

Bóka þarf tíma á læknavaktina eftir kl. 13:00 samdægurs virka daga og kl. 10:00 um helgar.

Ef um lífsógnandi tilfelli er að ræða á að hringja í 112

Í vafatilfellum skal hringja í upplýsingasímann 1700.

Hægt er að óska eftir lyfjaendurnýjun í gegnum mínar síður á heilsuveru sem fyrr og einnig er hægt að hringja í 422-0500.