
Þar sem breytingar hafa verið gerðar á samkomubanni vegna kóróna-veirunnar er rétt að taka fram að litlar breytingar verða á starfsemi HSS fyrst um sinn.
- Áfram verður heimsóknarbann á legudeildum HSS fyrir utan vægar tilslakanir í Víðihlíð.
- Áfram mun verða forgangsraðað í tíma á heilsugæslunni. Hjúkrunarmóttaka, sykursýkismóttakan og geðteymin hafa opnað að einhverju leyti fyrir aðkallandi erindi. Upplýsingar og símatímabókanir eru í síma 422-0500.
- Á læknavaktinni verður bókað í tíma fyrirfram í stað þess að skjólstæðingar mæti og bíði eftir lausum tíma. Tímar eru virka daga frá 15.30 til 20 og er tekið á móti beiðnum um tímabókanir samdægurs, í síma 422-0500, frá kl. 8.00. ATH að enn um sinn er forgangsraðað í viðtöl á læknavaktina.
- Dregið verður úr hlífðargrímunotkun í biðstofum HSS og einungis þeir skjólstæðingar sem eru með öndunarfæraeinkenni fá hlífðargrímur.
- Ungbarnavernd fer að mestu leyti í fyrra horf en áfram er aðeins gert ráð fyrir að eitt foreldri komi með barni í skoðun.
- Þjónusta í mæðravernd og á ljósmæðravakt verður með svipuðu sniði.
- Sýnatökur vegna COVID-19 verða þrisvar í viku, mánudaga, miðvikudaga og föstudaga. Hægt er að bóka símatíma í ráðgjöf þessa daga á heilsuvera.is eða í síma 422-0500.
Loks má minna alla á að viðhalda varúðarrástöfunum, til dæmis tveggja metra fjarlægðartakmörkunum og handþvotti.
Aðalnúmer
422-0500
Grindavík
422-0750
Vaktsími eftir lokun
1700
Neyðarnúmer
112