Ljósmæðravaktin á HSS

Ljósmæðravaktin er á 2. hæð hússins og skiptist í mæðravernd og fæðingadeild. Síminn á deildinni er 422-0542

Sólarhringsþjónusta er alla daga.

Deildin þjónustar allar heilbrigðar fæðandi konur sem ekki eru í áhættumeðgöngu eða hafa fyrirsjáanleg vandamál í fæðingu. Einnig þjónustar hún konur með smávægileg vandamál tengd meðgöngu og eftir fæðingu ásamt  brjóstagjafaráðgjöf.

Eitt af markmiðum Ljósmæðravaktarinnar er að veita samfellda þjónustu, þ.e.a.s. að fólk geti valið sér sína ljósmóður sem fylgir fjölskyldunni að sem mestu leyti í gegnum allt fæðingarferlið, á meðgöngunni, hugsanlega í  fæðingunni og eftir fæðingu.

Yfirljósmóðir er Jónína Birgisdóttir

Í fæðingareiningu eru fæðingarstofa, baðherbergi og fæðingarlaug. Hún er notuð til verkjastillingar og sumar konur kjósa að fæða í henni. Hægt er að loka fæðingareiningu þannig að ró og friður skapist fyrir verðandi foreldra á meðan á fæðingu stendur.

Einnig er á fæðingareiningunni tvö einbýli og eitt tvíbýli.

Boðið er upp á sængurlegu á deildinni fyri þær konur er þess þurfa en annars fara þær konur í heimaþjónustu innan 36 klst eftir eðlilega fæðingu.

Feður geta gist með konum sínum og er þá fjölskyldan saman með herbergi.

Ljósmæðravaktin tekur, eins og stofnunin sjálf, þátt í kennslu nemenda á háskólastigi.  Deildin sinnir verklegri kennslu ljósmæðranema.

Hægt er að senda inn fyrirspurnir til fæðingardeildarinnar á netfangið hss@hss.is

Aðalnúmer

422-0500

Grindavík

422-0750

Vaktsími eftir lokun

1700

Neyðarnúmer

112