Kvenfélag Grindavíkur gaf Ljósmæðravaktinni hjartsláttarrita

mánudagur, 26. ágúst 2019
Kvenfélag Grindavíkur gaf Ljósmæðravaktinni hjartsláttarrita

Ljósmæðravaktin á HSS fékk sannarlega veglega gjöf á dögunum þegar fulltrúar frá Kvenfélagi Grindavíkur afhentu deildinni fósturhjartsláttarita að verðmæti 1.500.000 króna.

Tækið mælir hjartslátt fósturs sem og tíðni og lengd samdrátta hjá móður og kemur í stað tækis sem hefur verið notað í 25 ár.

Við afhendinguna þakkaði Jónína Birgisdóttir yfirljósmóðir innilega fyrir gjöfina. 

„Við ljósmæður viljum þakka fyrir þessa rausnarlegu gjöf sem seint verður fullþakkað. Okkur þykir mjög vænt um að Kvenfélag Grindavíkur sé að styðja svo vel við Ljósmæðravaktina.“

Jónína bætir því við að með þessu nýja tæki sé ljósmæðravaktin að færast yfir í nútímann. Tækið tengist við tölvu og getur vistað ritin rafrænt, sem er bæði umhverfisvænt með því að spara pappírsnotkun, en býður einnig upp á bætta þjónustu við skjólstæðinga deildarinnar. 

Með því að hafa ritin rafræn er hægt að senda hjartsláttarrit rafrænt til frekari skoðunar hjá sérfræðingum á kvennadeild LSH. Tækið er ekki aðeins notað í fæðingum heldur líka á meðgöngunni, t.d. fyrir konur sem eru með einhverja áhættuþætti á meðgöngu.