Viðhalds- og tæknideild HSS er staðsett á 4. hæð D álmu.
Deildarstjóri viðhaldsd- og tæknideildar er Hermann F. Ólason. Rafvirki er Guðmundur Björgvinsson.
Starfsvæði viðhalds- og tæknideildar nær yfir allt starfsvæði HSS, þ.e. í Reykjanesbæ, Víðihlíð í Grindavík og heilsugæslustöðina í Grindavík.
Undir starfsemi viðhalds- og tæknideildar falla ýmis verkefni, m.a. viðhald og viðgerðir á húsnæði og tækjakosti stofnunarinnar og eftirlit með nýframkvæmdum og tækjakaupum.

Fasteignir ríkissjóðs tóku við rekstri og viðhaldi húseigna í ársbyrjun 2009. Árið 2009 var mikið framkvæmdaár í viðhaldsmálum fasteigna HSS og ber þar fyrst að nefna viðgerðir og málun utanhúss, einnig lokafrágangur á lóð og bílastæðum ásamt því að endurnýja vatnslagnir í öllum byggingum á Skólavegi 6. Þá var endurnýjað þak og ytra byrði húseignarinnar Víkurbraut 62, Grindavík. Þessar framkvæmdir voru á vegum Framkvæmdasýslu ríkisins, síðan komu Fasteignir Ríkissjóðs og stimpluðu sig inn með glæsibrag og tóku eldhús og matsal frá grunni ásamt tækjabúnaði. Síðan hafa verið miklar aðrar framkvæmdir, t.d. innréttað húsnæði fyrir C.T. tæki röntgendeildar, vatnslagnir endurnýjaðar í Víðihlíð og mörg önnur smærri verk, m.a. endurnýjun brunakerfis í A og B byggingu.
Á yfirstandandi ári eru miklar framkvæmdir:
- nýtt gólfefni í vörugang
- nýjar innihurðar á fyrstu hæð A byggingar, ásamt veggböndum á milli og stigahúsi
- veggbönd í innskot á annarri hæð D álmu
- málun á nokkrum rýmum og settur hlífðardúkur á veggi annarrar hæðar D álmu
- klárað að tengja brunakerfi A, B og C álmu við stjórnstöð D álmu
- nýtt þak á tengibyggingu
- nýtt anddyri með bættri aðkomu fyrir hreyfihamlaða
- Mánagata 9 tekin í gegn að utan
- endurnýjun þakefnis A byggingar
- endurnýjun ytra byrðis Víðihlíðar
- endurbætt kaffistofa og nýjar vatnslagnir á Heilsugæslustöð Grindavíkur