Tölvudeild Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja er staðsett á 4. hæð í aðalbyggingu.
Forstöðumaður tölvudeildar er Agnar Guðmundsson. Starfsmaður í tölvudeild er Guðrún S. Jóhannesdóttir, sérfræðingur í upplýsingatækni.
Tilgangur deildarinnar er að annast allan rekstur og viðhald á tölvukerfi HSS. Þessu til viðbótar stýrir tölvudeildin upplýsingatæknimálum stofnunarinnar og ber ábyrgð á vefsíðu og innranetskerfi HSS.
Tölvudeildin sér um öll samskipti við notendur, sér um innviði tölvukerfisins og ber ábyrgð á að allir miðlarar og hugbúnaður séu í viðunandi ásigkomulagi. Tölvukerfið er hefðbundið með netþjónum og útstöðvum. Netþjónarnir eru í afar öruggu kældu umhverfi og mikil áhersla lögð á öryggismál og almennt tölvuöryggi í notkun útstöðva.
Starfsmaður tölvudeildar sér um úrvinnslu ganga og heilbrigðisupplýsingar, hefur umsjón með rafrænni sjúkraskrá og samþættingu skráningar. Þá hefur starfsmaður tölvudeildar einnig umsjón með ársskýrslu stofnunarinnar.