|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Slysamóttaka Þeir sem koma á slysamóttöku eru þeir sem hafa meitt sig á síðasta sólarhring. Fólki með eldri meiðsl er bent á heilsugæsluna. Tekið er á móti slösuðum allan sólarhringinn. Á virkum dögum milli klukkan 8:00 og 16:00 er hjúkrunarfræðingur á staðnum sem sinnir móttöku slasaðra. Eftir klukkan 16:00 og um helgar þarf að láta vita af sér í afgreiðslunni.
Bráðamóttaka Við hlið slysamóttökunnar er móttaka bráðveikra einstaklinga sem koma með sjúkrabíl eða eru illa haldnir er þeir koma á heilsugæslustöðina. Hjúkrunarfræðingur tekur á móti þeim á milli klukkan 8:00 og 16:00 virka daga og kallar til þann lækni heilsugæslunnari sem sinnir bráðaþjónustu hverju sinni.
Hjúkrunarfræðingur á slysa og bráðamóttöku tekur öll hjartalínurit. Árlega eru um 3000 nýkomur á slysa- og bráðamóttöku. Deildarstjóri slysa- og bráðamóttöku er Íris Kristjánsdóttir.
| |
|
|
|
|
|
|
|
Neyðarnúmer: 112 Tímabókanir: 8:00-16:00 Skiptiborð: 422 0500 Fax: 421 2400 Netfang: hss@hss.is | |
|