Heilbrigðisstofnun Suðurnesja - Rannsóknardeild


Leita í:
Leitarorð:

Hreinsa | Leita 


 Rannsóknardeild

Rannsóknastofan er þjónustudeild og eru rannsóknir gerðar samkvæmt beiðnum lækna. Rannsóknastofan er staðsett  í D-álmu sjúkrahússins. Gengið er inn um aðaldyr.

Opnunartími rannsóknastofunnar er alla virka daga frá klukkan 8:00 - 15:30.

Blóðsýni eru tekin frá 08:00 - 10:00. Einnig er tekið á móti öðrum sýnum á sama tíma.

Lífeindafræðingur veitir þjónustu á HSS í Grindavík, fimmtudaga frá 08:30-09:30. Ekki þarf að panta tíma, eru  læknar beðnir um að beina fólki í blóðtöku á þessum  tíma.

Greitt er fyrir blóðtöku og önnur sýni í afgreiðslu áður en þjónustan er veitt.

Rannsóknagjöld:

1.600 krónur (almennir fullorðnir skjólstæðingar)
800  krónur (fullorðnir m/afsláttakort)
600  krónur (öryrkjar,lífeyrisþegar og börn 0-18)
300  krónur (börn,lífeyrisþegar og öryrkjar með afsláttakort)

Símanúmer á rannsóknastofu í Reykjanesbæ er 422 0617 og í Grindavík 426 7000

Starfsemi

Sýni (blóð, þvag ) eru mæld og skoðuð samdægurs eða send til frekari úrvinnslu annars staðar, svör geta því borist strax eða allt að viku seinna.

Flest svör frá sýklarannsóknum koma eftir einn eða tvo daga en ef  sýni eru send tekur það lengri tíma.

Upplýsingar um rannsóknaniðurstöður veitir sá læknir, sem ávísaði rannsókninni, annað hvort í símatíma eða eftir nánara samkomulagi. Blóðtökukerfið sem notað er á HSS við sýnatökur er frá VACCUETTE.

Á rannsóknastofu HSS eru framkvæmdar grundvallar rannsóknir á sviði:

Blóðfræði: þ.e. blóðkornarannsóknir, blóðstrok, vökvarannsóknir, storkurannsóknir, blóðgasmælingar.

Meinefnafræði: gerðar eru lífefnafræðilegar rannsóknir til greiningar á sjúkdómum, til mats á áhættu að fá sjúkdóma og til að fylgja eftir meðferð.    

Sýklafræði: gerðar eru allar algengustu sýklaræktanir. Blóð- saur-  klamydiu og berklaræktanir eru sendar á Sýkladeild LSP v/Hringbraut.

Starfsmenn rannsóknadeildarinnar:

Sigurlaug N. Þráinsdóttir, yfirlífeindafræðingur
Guðrún Guðmundsdóttir, lífeindafræðingur
Kristín B. Halldórsdóttir lífeindafræðingur
Hildur Björnsdóttir lífeindafræðingur

Ísleifur Ólafsson, faglegur ráðgjafi

Netföng sem geta komið sér vel:

Handbók rannsóknardeildar Landspítalans:
Sýklafræði
Veirufræði
Vefjafræði

 


Neyðarnúmer: 112
Tímabókanir: 8:00-16:00
Skiptiborð: 422 0500
Fax: 421 2400
Netfang: hss@hss.is


21.06.2010
Konráð læknir dró þjóðfánann að húni

15.06.2010
SMS áminningar í sjúklingakerfi HSS

10.06.2010
Landspítali og Heilbrigðisstofnun Suðurnesja semja um fæðingaþjónustu

31.05.2010
Starfsemi HSS í sumar

28.05.2010
AA fundur á D deild HSS



©2003 Heilbrigðisstofnun Suðurnesja | Skólavegi 6, 230 Reykjanesbæ | www.hss.is | hss@hss.is