|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Starfsemi sjúkraþjálfunar hófst á HSS með reglubundnum hætti árið 1998 og hefur hún að mestu sinnt sjúkrahússviði HSS, þ.e. A og D deildum auk fæðingardeildar og Víðihlíðar í Grindavík. Einnig hafa sjúkraþjálfarar sinnt göngudeildarþjónustu gegn framvísun beiðni um þjálfun frá lækni. Starfsemi fer fram alla virka daga frá klukkan 8:00-16:00. Sjúkraþjálfun er í nýrri og glæsilegri aðstöðu í D-álmu sem samanstendur af tækjasal, meðferðarherbergi, þjálfunarlaug og skrifstofu. Í dag eru starfandi 2 sjúkraþjálfarar hjá HSS.
Yfirsjúkraþjálfari: Sara Guðmundsdóttir Sjúkraþjálfari: Sonja Middelink
Markmið sjúkraþjálfunar á HSS:
- Að veita skjólstæðingum sjúkraþjálfunar viðeigandi þjálfun, fræðslu og ráðgjöf með það að markmiði að auka eða viðhalda líkamlegri, andlegri og félagslegri getu þeirra á meðan legu þeirra stendur yfir.
- Að auka eða viðhalda færni og hreyfigetu skjólstæðinga okkar og auðvelda þeim að takast á við hið daglega líf er sjúkrahúsvist lýkur.
- Veita starfsmönnum HSS fræðslu og ráðgjöf hvað varðar vinnuvistfræði.
Leiðir að markmiðum
Einstaklingsþjálfun:
- skoðun og prófanir
- færnisþjálfun
- styrktarþjálfun
- úthaldsþjálfun
- vatnsþjálfun
- hin ýmsu önnur meðferðarúrræði ss.
- fræðsla og ráðgjöf.
- nudd, teygjur, liðlosun, tog, laser, bylgjumeðferð, rafmagnsmeðferð, heitir og kaldir bakstar.
- hjálpa við val á hjálpartækjum og kenna notkun þeirra.
Hópþjálfun:
- Fyrirhuguð er ýmis hópþjálfun í sal og laug.
Áhugaverðar síður:
Félag íslenskra sjúkraþjálfara Námsbraut í sjúkraþjálfun við Háskóla Íslands Tryggingastofnun Ríkisins
| |
|
|
|
|
|
|
|
Neyðarnúmer: 112 Tímabókanir: 8:00-16:00 Skiptiborð: 422 0500 Fax: 421 2400 Netfang: hss@hss.is | |
|