Í Víðihlíð er rekin hjúkrunardeild fyrir aldraða. Þar er pláss fyrir 25 vistmenn. Deildin er á tveimur hæðum og var efri hæðin var tekin í notkun í september 1992 og neðri hæðin í júlí 1994. Á efri hæðinni vistast þeir einstaklingar sem þarfnast meiri umönnunar og eftirlits. Hægt er að loka af hluta hæðarinnar til að varna því að órólegir einstaklingar fari út. Flest herbergin eru 2ja manna, þó eru 3 einstaklingsherbergi. Vistmönnum er velkomið að hafa með sér persónulega muni til að gera umhverfið heimilislegra og hlýlegra. Ýmislegt er í boði til dægrastyttingar s.s. samverustundir með söng, sögulestri og spilum. Einnig er boðið uppá kermikmálun og taumálun. Á báðum hæðum er matsalur/setustofa þar sem vistmenn koma saman og njóta samvista hvert við annað og horfa á sjónvarp. Af neðri hæðinni er gengt út í garð sem er sunnan við húsið. Á góðviðrisdögum er oft setið þar úti, kaffi drukkið og veðurblíðunnar notið.
Aðstaða til sjúkraþjálfunar er ágæt og kemur sjúkraþjálfari reglulega og sinnir þeim sem á þurfa að halda. Í þvottahúsi Víðihlíðar eru þvegin einkaföt vistmanna. Yfirhjúkrunarfræðingur er Edda Bára Sigurbjörnsdóttir.
Víðihlíð - hjúkrunardeild aldraðra
Austurvegi 5
240 Grindavík
sími 426 - 7600 & 426 - 7601
fax 426 - 7610
Áhugaverðir hlekkir:
Efni á vefsíðu Alþingis
Efni frá reglugerðir.is