Fæðingardeild HSS
Fæðingardeildin er 8 rúma fæðinga- og kvensjúkdómadeild sem er opin allan sólarhringinn, alla daga ársins.
Deildin þjónustar fæðandi konur og konur með vandamál tengd meðgöngu og kvensjúkdómum
Við deildina starfa ljósmæður, sjúkraliðar, læknar, og ritari sem kappkosta við að gera dvöl skjólstæðinga sem besta.
Deildarstjórar eru Guðrún Guðbjartsdóttir og Anna Rut Sverrisdóttir. Yfirlæknir er Konráð Lúðvíksson.
Starfsfólk fæðingardeildar.

Deildin er þekkt fyrir heimilislegan blæ og erum við stolt af því.
Á fæðingadeildinni eru 4 stofur. Tvær stofur eru kósý einbýli með hjónarúmi. þær eru ætlaðar nýbökuðum foreldrum fyrsta sólarhringinn. Hinar tvær stofurnar eru tveggja manna með salerni og baði.

Í fæðingareiningu eru fæðingarstofan, baðherbergi og fæðingarlaug. Hún er notuð til verkjastillingar og sumar konur kjósa að fæða í henni. Hægt er að loka fæðingareiningu þannig að ró og friður skapist fyrir verðandi foreldra á meðan á fæðingu stendur.
Deildin er 3-4 stærsta fæðingardeild landsins.
Fjöldi fæðinga undanfarin ár hefur verið um 225 - 250. Vatnsfæðingar s.l. 5 ár hafa verið 14-27% . Fyrsta vatnsfæðingin var í desember. 1997. Flestar vatnsfæðingar á landsvísu eru í Reykjanesbæ.
Boðið er upp á sængurlegu á deildinni en einnig geta þær konur sem vilja fengið heimaþjónustu.
Ef húsrúm leyfir, er feðrum boðið að dvelja á deildinni og er þá fjölskyldan saman með herbergi.
Á deildinni er lítil notaleg setustofa með sjónvarpi, ísskáp, samlokugrilli og blandara ef konur vilja sjálfar auka fæðuúrval sitt.
Ljósmæður er sinna heimaþjónustu
Fæðingin:
Við leggjum mikla áherslu á að koma til móts við þarfir foreldra í fæðingunni og höfum til þess ýmis hjálpartæki og ráð.
Við hvetjum konur til að koma sínum óskum á framfæri varðandi fæðinguna. Einnig erum við með ýmsar úrlausnir til verkjastillingar í fæðingu s.s. baðið, nálastungur, nudd, verkjalyf og mænurótardeyfingu.
Meira um fæðinguna (word-skjal) einnig mynd af fæðingarstofunni hér.
Brjóstagjöf:
Í mæðraverndinni er verðandi mæðrum afhent sérstök fræðslumappan með öllu því nýjasta um brjóstagjöf. Við vinnum eftir 10.þrepum brjóstagjafar (WHO). Við styðjum sólarhringssamveru móður og barns. Við hvetjum foreldra til að bjóða ekki barni sínu snuð fyrstu dagana eftir fæðingu þar sem rannsóknir sýna að snuðnotkun getur truflað sogferli barnsins á brjósti einnig svo barnið fái það litla magn af mjólk sem kemur fyrstu dagana.
Við hvetjum til brjóstagjafar án ábótagjafar.
Hér er að finna áhugaverðar upplýsingar um brjóstagjöf undir Miðstöð mæðraverndar/fræðsla.
Brjóstagjöf
Heimferð eftir fæðingu er í samráði við ljósmóður. Skjólstæðingar heimaþjónustu yfirgefa deildina innan við 36 klst. frá fæðingu á meðan aðrar kjósa að dvelja allt að 4-5 daga eftir aðstæðum hverju sinni.
Við leggjum mikla áherslu á að brjóstagjöf sé komin vel af stað áður en haldið er heim.
Heimsóknir:
Heimsóknartímar eru frá kl. 14:00 - 21:00. en viðvera föður eða staðgengils hans er leyfileg allan sólahringinn meðan húsrúm leyfir. Við viljum minna gesti á að virða heimsóknartíma þar sem mæður eru oft mjög þreyttar eftir fæðingu og foreldrar þurfa tíma til að kynnast barninu og takast á við brjóstagjöf og ýmsa fræðslu sem tilheyrir foreldrahlutverkinu.
Heimsóknir barna eru takmarkaðar við systkini nýburans.
Fæðingadeildin tekur, eins og stofnunin sjálf, þátt í kennslu nemenda á háskólastigi. Deildin sinnir verklegri kennslu ljósmæðra- og hjúkrunarnema.
Hér má nálgast þjónustukönnun sem gerð var meðal sængurkvenna á fæðingadeild HSS á tímabilinu okt. 2005- jan 2006.
Hægt er að senda inn fyrirspurnir til fæðingardeildarinnar á netfangið hss@hss.is
Áhugaverðir vefir:
doktor.is
ljosmodir.is
heilsugaeslan.is