Hjúkrunar-og endurhæfingardeild Heimahjúkrunar er staðsett á annarri hæð í eldri byggingu. Á deildinni eru 16 legurúm á 7 stofum. Opnunartími er frá kl. 08:00 á mánudagsmorgnum til kl. 16:00 á föstudögum.
Hjúkrunarfræðingar eru á vakt á tímabilinu kl. 08:00 - 24:00 og bakvakt á nóttunni mánudaga til föstudaga. Einnig starfa sjúkraliðar á deildinni.
Meginstarf deildarinnar er að bjóða upp á einstaklingsmiðaða meðferð, endurhæfingu ,lyfja-og verkjameðferðir, hvíldarinnlagnir og bráðainnlagnir fyrir skjólstæðinga heimahjúkrunar. Því er lengd dvalar mismunandi eftir þörfum einstaklinga.
Innlagnarferli
Beiðnir (skriflegar) geta borist frá legudeildum HSS, heimahjúkrun og læknum HSS.
Á þriðjudögum og fimmtudögum eru haldnir fundir þar sem farið er yfir stöðu deildarinnar og ráðgert með framhaldið. Á þessum fundi eru beiðnir teknar fyrir.
Á fundinn mæta: hjúkrunarfræðingur, læknir og sjúkraþjálfi.
Deildarstjóri kallar síðan til innlagnar eftir aðstæðum.
Jafnframt sinnir deildin göngudeildarþjónustu s.s. inndæling lyfja, blóðgjafir og fleira. Þessum sjúklingum er sinnt á göngum deildarinnar eins og er en verið er að útbúa, með hjálp líknarfélaga á svæðinu, sérstaka stofu sem staðsett er í gömlu skurðstofueiningunni á sama gangi.
Deildarstjóri: Bryndís Guðbrandsdóttir
Yfirlæknir: Sigurður Árnason
Deildarritari: Svala Rún Jónsdóttir og Eygló Hjálmarsdóttir
Símanúmer deildar: 422-0533
Sjúklingasími: 422-0530
Áhugaverðir tenglar
Blóðbankinn
Tryggingastofnun ríkisins
Doktor.is
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
Gott úrval fræðsluefnis
Heilbrigðisráðuneytið
Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands
Manneldisráð Íslands
Heilsustofnun NLFÍ, Hveragerði
Vefur um sjúkraþjálfun og heilsueflingu