Upplýsingar um flensuna má nálgast á: www.landlaeknir.is og www.influensa.is .
Nýr bæklingur um inflúensuna.
Leiðbeiningar fyrir heimilisfólk - Sýkingar af völdum nýrrar inflúensu A(H1N1)v veiru
Upplýsingar um einkenni, smitleiðir og meðferð - Sýkingar af völdum nýrrar inflúensu A(H1N1)v veiru
Gera má ráð fyrir að það komi til heimsfaraldrar, en það er afar fátt sem bendir til þess nú að um óeðlilega mörg dauðsföll verði að ræða á Vesturlöndum. Lyf virka og eru til í landinu. Meðgöngutími er 1-2 dagar og menn eru smitandi í ca. sólarhring áður en þeir veikjast. Ef engra veikinda hefur orðið vart 7-10 dögum frá mögulegu smiti þá má gera ráð fyrir að ekki sé um smit að ræða.
Ef grunur um smit:
- Forðast fjölmenni
- Halda metersfjarlægð frá næsta manni, ef unnt er, ekki síst ef hann er hóstandi
- Hafa einnota þurrkur á sér, hósta í þær og snýta og fleygja í rusl
- Þvo sér rækilega um hendur oft og helst eftir hverja þurrkunotkun
- Nota handspritt
- Vera heima ef þú ert lasin(n) - það er ekki hetjuskapur að fara veikur í vinnuna, það er heimska! Kirkjugarðarnir eru fullir af ómissandi fólki!
- Helstu einkenni:
- hár hiti
- öndunarfæraeinkenni
- beinverkir
- hrollur
- Höfuðverkur
- Uppköst/niðurgangur
- Hafa má símsamband við heilsugæslu ef með þarf (422-0500 alla daga frá 08-16) .
- Forðast að koma á heilsugæslu nema þú sért alvarlega veikur og þá eftir símtal. Miðað er við að sinna fólki sem mest í heimahúsum.
- Takið eftir -
Fólk með inflúensueinkenni og þeir sem hafa verið í samskiptum við fólk með inflúensueinkenni og hafa áhyggjur af því
1. Vinsamlegast ekki koma inn á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja án samráðs við símaráðgjöf eða fagfólk innanhúss
2. Hringið í síma: 422-0500
3. Bíðið í bíl eftir afgreiðslu
4. Ekki koma í heimsókn á deildir án samráðs við hjúkrunarfræðinga/ljósmæður
Þetta er gert til þess að takmarka útbreiðslu smits
Með von um góða samvinnu.
Bestu þakkir,
Sóttvarnaráð Heilbrigðistofnunar Suðurnesja.