Heilbrigðisstofnun Suðurnesja - Starfsemi


Leita í:
Leitarorð:

Hreinsa | Leita 


 Starfsemi

Mæðravernd við HSS

Allar verðandi mæður eiga kost á mæðravernd sér að kostnaðarlausu.  Mæðravernd fer fram frá mánudegi til föstudags.  Ef mæður þurfa að ná í ljosmóður, þá er best að hringja í skiptiborð í síma 422 500 og ljósmóðir hringir til baka þegar vel stendur á.  Mæðravernd er fyrst og fremst sinnt af ljósmæðrunum Halldóru Kristinsdóttur og Margréti Knútsdóttur en aðgengi að sérfræðingum í fæðingum og kvensjúkdómum er gott. Þeir sinna m.a. ómskoðunum.  Hefðbundin mæðravernd hefst 10-12 vikum eftir síðustu blæðingar og fer tíðni skoðana eftir aðstæðum hverju sinni og óskum verðandi foreldra. 

Markmið mæðraverndar eru: 
Að stuðla að sem bestri líðan foreldra og fósturs á meðgöngutímanum og eftir fæðingu. 
Að greina áhættuhópa sem þurfa meiri þjónustu og sinna þörfum þeirra sérstaklega.
Að fyrirbyggja og greina líkamleg og andleg frávik mæðra á meðgöngutímanum og gera viðeigandi ráðstafanir.  

Þungun? - Hvað á ég að gera ?
Ef grunur er um þungun er fyrsta skrefið að gera þungunarpróf sem fæst í apótekum. Hægt er að hafa samband við mæðrvernd fyrr ef þörf krefur t.d. ef um mikla ógleði er að ræða og ef konan hyggst fara í hnakkaþykktarmælingu.
Hnakkaþykktarmæling eða NT-mæling er í boði fyrir allar konur, en konur þurfa að hafa samband við mæðravernd til þess að fá upplýsingar og beiðni.

Fyrsta koma
Í fyrstu komu eru teknar upplýsingar, teknar blóðprufur og veitt fræðsla ásamt því að hlusta eftir hjarfslætti fóstur.  Þetta tekur um klukkustund.  Æskilegt er að tilvonandi foreldrar komi báðir.  


Ómskoðun -  Mæðravernd
Reglubundnar ómskoðanir fara fram í  20. viku og í 34. viku meðgöngu. 
Markmiðið er fyrst og fremst fósturgreining, staðfesta meðgöngulengd og þar með áætlaðan fæðingardag og staðsetningu á fylgju . 



Samvinna við fæðingardeildina
Náin samvinna er við fæðingardeild HSS og er allt upplýsingaflæði mjög virkt, með hag skjólstæðinganna að leiðarljósi. Ef grípa þarf inn í meðgönguna með nánara eftirliti er auðvelt um vik þar sem fæðingadeildin tekur við með sínu hlýlega umhverfi. Fæðingarlæknar eru til staðar við allar áhættufæðingar. 


Fræðsla
Sérstök áhersla er lögð á fræðslu fyrir verðandi foreldra.  Foreldrar fá bæklinga og ýmsa fræðslu. 
Hún er veitt í mæðraverndinni sjálfri og á sérstökum námskeiðum.

 


Neyðarnúmer: 112
Tímabókanir: 8:00-16:00
Skiptiborð: 422 0500
Fax: 421 2400
Netfang: hss@hss.is


25.08.2010
Nýr starfsmaður skólaheilsugæslu

17.08.2010
Nýr deildarstjóri í skólaheilsugæslu

12.08.2010
Nýir starfsmenn í GOSA

07.07.2010
Veglegar gjafir afhentar HSS

30.06.2010
Ársskýrsla HSS 2009



©2003 Heilbrigðisstofnun Suðurnesja | Skólavegi 6, 230 Reykjanesbæ | www.hss.is | hss@hss.is