Við bjóðum upp á:
- heyrnarmælingar fyrir einstaklinga, vinnustaði og skóla
- hreinsun, almennt viðhald á heyrnartækjum og seljum rafhlöður í tækin
Tilgangurinn er að koma í veg fyrir:
- heyrnarskemmdir og skaðleg áhrif af völdum hávaða með markvissu eftirliti
- að fólk einangrist af völdum heyrnarskerðingar
- að skólabörn eigi í lestrarörðugleikum, bresti athygli, hafi skertan málþroska og bjögun á tali vegna heyrnarskerðingar.
Að panta tíma:
Í Heyrnarverndinni starfar Vilborg Jóhannesdóttir, sjúkraliði á miðvikudögum. Hægt er að panta tíma í afgreiðslu HSS frá kl: 8.00-16.00, alla virka daga. Ekki er nauðsynlegt að hafa tilvísun frá lækni. Greitt er almennt komugjald á heilsugæslustöð fyrir heyrnarmælingar nema ef börn eru send í heyrnarmælingu frá grunnskólum svæðisins þá er sú mæling greidd af almannatryggingakerfinu. Viðhaldsþjónusta á heyrnartækjum er ókeypis, en notendur greiða fyrir rafhlöður í tækin.
Til fróðleiks:
Heyrnarmæling
Í reglum um hávaðavarnir á vinnustöðum og heyrnareftirlit starfsmanna
( Stjtíð.B nr 500/1994) kemur fram að árlega skuli mæla heyrn hjá þeim starfsmönnum sem ætla má að verði fyrir hávaða yfir 85dB. Almennt er talið að í flestum iðnþróuðum löndum heimsins sé nálægt 20% alls starfsfólks sem vinnur í hávaða með varanlegar heyrnarskemmdir.
Með árlegu eftirliti starfsmanna, viðeigandi umbótum á vinnustað og notkun á öryggisbúnaði, ( s.s. eyrnatöppum og heyrnarhlífum) má koma í veg fyrir heyrnarskemmdir í allt að 90% tilvika.
Nauðsynlegt er að fylgjast vel með heyrn skólabarna. Tiltölulega lítil heyrnarskerðing getur seinkað málþroska og bjagað tal þeirra. Þau geta átt við lestrarörðugleika að stríða og búið við skerta athygli .
Heyrnarskerðing - heyrnartæki
Með hækkuðum meðalaldri manna á Íslandi hefur gætt vaxandi heyrnarskerðingar. Þriðji hver maður yfir sjötugt er félagslega skertur sökum heyrnarskerðingar og þarfnast ef til vill heyrnartækis. Það getur verið erfitt að viðurkenna fyrir sjálfum sér að eitthvað sé að.
Kannast þú við eitthvað af þessu?
- að eiga erfitt með að heyra talað mál í fjölmenni?
- að vera utanveltu í samræðum?
- að standa þig að því að misskilja og svara út í hött?
- að eiga í erfiðleikum með samskipti innan fjölskyldunnar?
- að eiga í erfiðleikum með samskipti á vinnustað?
- að heyra illa talað mál í sjónvarpi og útvarpi?
- að njóta ekki leiksýninga eða samkvæma?
- að hafa átt erfitt með tungumálanám?
Eigi eitthvað af þessu við þig eða einhvern þér nákominn, er fyrsta skrefið að fara í heyrnarmælingu og fá úr því skorið hvort um heyrnarskerðingu er að ræða. Sé svo þarf að fara í nákvæmari rannsóknir og læknisskoðun. Heyrnartæki geta oftast hjálpað og því fyrr sem farið er, því meiri líkur eru á að hægt verði að aðlagast og nýta sér heyrnartækið til fullnustu. Heyrnarskerðing á fullorðinsaldri getur valdið verulegri félagslegri fötlun, óöryggi og þunglyndi sem hlýst af aukinni einangrun.