Heimahjúkrun er veitt alla virka daga frá klukkan 8:00 - 16:00, á kvöldin frá 18:00 - 22:00 og um helgar þegar þörf krefur.
Símatími heimahjúkrunar er alla virka daga frá 9:00 - 9:30 í síma 422-0620. Deildarstjóri: Bryndís Guðbrandsdóttir.
Markmið heimahjúkrunar er að gera skjólstæðingum kleift að búa heima hjá sér við sem eðlilegastar aðstæður eins lengi og unnt er miðað við heilsufar og félagslegar aðstæður.
Þjónustan sem veitt er byggist á fagþekkingu, reynslu, umhyggju og virðingu.
Skjólstæðingar heimahjúkrunar eru þeir einstaklingar sem þurfa hjúkrun til að geta dvalið heima. Hjúkrunarfræðingar, læknar, skjólstæðingar og ættingjar þeirra geta beðið um þessa þjónustu fyrir alla aldurshópa sem búa á Suðurnesjum. Þjónustan er þeim að kostnaðarlausu.
Sem dæmi um viðfangsefni heimahjúkrunar má nefna aðstoð við böðun, umsjón og eftirlit með lyfjagjöfum, sáraskiptingar, eftirlit með æðaleggjum og þvagleggjum, blóðþrýstingseftirlit og annað almennt eftirlit með heilsufari og öryggi skjólstæðingsins.