Hlutverk félagsráðgjafa er að veita upplýsingar og leiðbeiningar um félagsleg réttindi. Í því felst að meta félagslega stöðu skjólstæðings með tilliti til fjármála, húsnæðis, atvinnu, fjölskylduaðstæðna, félagslegs nets og löggjafar. Einnig veitir félagsráðgjafi stuðning við að leysa úr persónulegum og félagslegum vanda. Félagsráðgjafi leitar leiða til úrbóta þegar þess er þörf og hefur samstarf við stofnanir sem málin varðar.
Viðverutími félagsráðgjafa er miðvikudaga og fimmtudaga frá kl. 8-16 og föstudaga frá kl. 8-12. Varðandi tímabókanir þá vísa aðrir fagaðilar beiðnum um viðtöl, en ef fólk vill panta tíma þá hefur það samband við afgreiðslu og skilur eftir nafn og símanúmer og félagsráðgjafi hefur samband eins fljótt og auðið er. Staða félagsráðgjafa er laus eins og er og hefur verið auglýst á Starfatorgi.