Heilbrigðisstofnun Suðurnesja - Endurnýjun lyfseðla


Leita í:
Leitarorð:

Hreinsa | Leita 


 Endurnýjun lyfseðla

Skjólstæðingar heilsugæslu HSS geta óskað eftir endurnýjun lyfseðla með tölvupósti. Hér er átt við lyf sem fólk hefur áður fengið skrifað upp á hjá HSS.

Það sem þarf að gera er að senda upplýsingar um nafn, kennitölu, símanúmer, heiti lyfs, skammtastærð, ástæðu lyfjatöku.  Lyfseðlar eru sendir í lyfseðlagátt og hægt að nálgast þá í hvaða apóteki sem er á landinu.

Reynt verður að afgreiða sem mest samdægurs en ekki er hægt að lofa afgreiðslu nema innan 2ja virkra daga. Því er fólk hvatt til að sýna fyrirhyggju og óska eftir endurnýjun í tíma.

Að öllu jöfnu eru ekki afgreidd svefnlyf, sterk verkjalyf, róandi lyf, Ritalin og skyld lyf og sýkingalyf á þennan hátt.

Sendið tölvupóst á netfangið el@hss.is með ofangreindum upplýsingum.


Neyðarnúmer: 112
Tímabókanir: 8:00-16:00
Skiptiborð: 422 0500
Fax: 421 2400
Netfang: hss@hss.is


28.01.2010
Ályktanir Hjúkrunarráðs HSS

15.01.2010
Tímabókanir vegna svínainflúensubólusetningar

31.12.2009
Áramótakveðja frá fæðingardeildinni

28.12.2009
Húfur frá Kvenfélagskonum

22.12.2009
Gjafir til fæðingardeildarinnar



©2003 Heilbrigðisstofnun Suðurnesja | Skólavegi 6, 230 Reykjanesbæ | www.hss.is | hss@hss.is