Á heilsugæslunni í Reykjanesbæ er læknir á bráðavakt allan sólarhringinn.
Almenn móttaka lækna á bráðavakt er frá kl. 16:00 til 20:00 alla daga og frá kl. 10:00 til 13:00 og 17:00 til 19:00 um helgar.
Alla virka daga frá 8:00 til 16:00 tekur hjúkrunarfræðingur á heilsugæslu á móti bráðatilfellum, sinnir símaráðgjöf, metur, meðhöndlar og kallar til lækni eftir þörfum.
Slysa- og bráðamóttaka HSS tekur á móti öllum sjúklingum sem eru slasaðir og einnig þeim sem eru veikir og treysta sér ekki til að bíða eftir næsta lausa tíma hjá lækni.