Heilbrigðisstofnun Suðurnesja - Þjónusta


Leita í:
Leitarorð:

Hreinsa | Leita 


 Þjónusta

Yfirlæknir: Sigurjón Kristinsson 
Yfirhjúkrunarfræðingur: Laufey Birgisdóttir
Sími: 422-0750
Fax: 426-7620

Almennt um Heilsugæslustöðina
Heilsugæslustöð hefur verið starfrækt í Grindavík frá árinu 1972 og er hluti af heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Heilsugæslustöðin er staðsett á Víkurbraut 62 í Verslunarhúsinu á efri hæðinni og var tekin þar í notkun 1992 en áður var hún staðsett í Borgarhrauni 6.
Árið 1985 var Kristmundur Ásmundsson sérfræðingur í öldrunarlækningum fastráðinn læknir við stöðina í fullu starfi. Árið 1986 var Ólavía Steinunn Sveinsdóttir hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir ráðin hjúkrunarforstjóri en hún hafði starfað hér í bæ við sitt fag í Grindavík í áratugi.
Starfssvæði stöðvarinnar er í Grindavík og er fjöldi íbúa um 2.800 manns en fjöldi fólks er meiri yfir vertíðarmánuðina því þá landa hér fjöldi skipa t.d. voru hér á tímabilinu jan-mars og sept-des. árið 2002 ca 2.500 landanir.

Vaktsími heilsugæslulækna er 422-0750
Hægt er að panta símatíma daglega frá kl. 08:30-16:00.
Móttökuritarar eru: Hulda Smáradóttir og Kolbrún Guðmundsdóttir.

Þjónusta stöðvarinnar
Á heilsugæslustöðinni er veitt eftirfarandi þjónusta:

Læknaþjónusta:
Heilsugæslulæknar veita alla almenna læknaþjónustu á heilsugæslu.
Læknaritari er Sigrún Jónsdóttir.

Sérfræðiþjónusta:
Barnalæknir: Sigurður Björnsson kemur hér alla fimmtudagsmorgna.
Augnlæknir: Jens Þórisson kemur hér mánaðarlega.
Kvensjúkdómalæknir: Konráð Lúðvíksson kemur hér einu sinni í mánuði.


Rannsóknir:
Meinatæknir frá heilbrigðisstofnun Suðurnesja kemur hér einu sinni í viku á fimmtudögum kl. 08:30 - 10:30. Einnig er tekið á móti þvagsýnum til sendingar á Rannsókn í Reykjanesbæ ef þau berast fyrir kl. 10:00 alla daga nema miðvikudaga.

Almenn hjúkrunarþjónusta:
Við heilsugæsluna starfa tveir hjúkrunarfræðingar og ljósmóðir í 0,1 stöðugildi.  Hjúkrunarfræðingar sinna almennri hjúkrunarþjónustu á stöðinni s.s. sáraskiptingum, blóðþrýstingsmælingum, ónæmisaðgerðum og lyfjagjöfum. Hjúkrunarfræðingar skipuleggja og annast ungbarnaeftirlit, skólaheilsugæslu og starfsmannaheilsuvernd í samvinnu við heilsugæslulækna. Einnig sinna hjúkrunarfræðingar margvíslegri fræðslu og ráðgjöf tengdri heilsuvernd. Ljósmóðir sinnir mæðravernd.  
Yfirhjúkrunarfræðingur er Laufey Birgisdóttir.
Hjúkrunarfræðingur er Stefanía Jónsdóttir og ljósmóðir er Jónína Birgisdóttir.

Mæðraeftirlit:
Ljósmóðir/hjúkrunarfræðingur sér um reglubundið eftirlit með verðandi mæðrum og veitir þeim fræðslu og ráðgjöf. Námskeið fyrir verðandi foreldra eru haldin relgulega á vegum mæðraverndar HSS í Reykjanesbæ
Allar þungaðar konur búsettar í Grindavík eru velkomnar í mæðraeftirlit. Æskilegt er að konur komi í læknisskoðun 10 - 12 vikum eftir síðustu blæðingar.
Öllum þunguðum konum er boðin ómskoðun í 18 - 19 viku og 34 viku meðgöngu. Einnig ef þörf er á sérfræðiáliti lækna. Slíkar skoðanir eru framkvæmdar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja Reykjanesbæ af sérfræðingum í fæðingar- og kvensjúkdómum. Konurnar eru í reglubundnu eftirliti allan meðgöngutímann hjá ljósmóður á Heilsugæslustöðinni í Grindavík. Eftirskoðun fer fram 6 - 8 vikum eftir fæðingu. 
Jónína Birgisdóttir annast mæðravernd.

Ungbarnaeftirlit:
Barnalæknir er Sigurður Björnsson, sem annast almenna ungbarnavernd.  Sigurður er hér á fimmtudögum frá kl. 08:00 - 12:00.

Í ungbarnaeftirliti er fylgst með vexti og þroska barna frá fæðingu til skóla aldurs og foreldrar fá fjölbreytta fræðslu og ráðgjöf. Hjúkrunarfræðingar vitja foreldra og barns fyrstu vikurnar eftir fæðingu. Þá eru skoðanir og ónæmisaðgerðir í ungbarnaeftirliti í samvinnu við heilsugæslulækna og barnalækni. 

Heimahjúkrun:
Heimahjúkrun er á vegum Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja. Starfsmenn hennar koma úr Reykjanesbæ. Markmið heimahjúkrunar er að gera skjólstæðingum kleift að dveljast heima eins lengi og unnt er miðað við heilsufar og félagslegar aðstæður.
Heimahjúkrun er skipulögð í náinni samvinnu við skjólstæðinginn, aðstandendur hans og aðra þjónustuaðila. Hjúkrunarfræðingar koma í fyrstu vitjun og meta hjúkrunarþörfina.
Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar heimahjúkrunar annast síðan alla þá hjúkrun, líkamlega og andlega sem við á og hægt er að framkvæma við þær aðstæður sem heimilið og/eða annar aðbúnaður býður upp á.
Heimahjúkrun er veitt alla daga, kvöld- og helgarþjónusta er eftir þörfum, og mati heimahjúkrunar.

Skólaheilsugæsla:
Markmið skólaheilsugæslu er að stuðla að því að skólabörn fái að þroskast við þau bestu líkamlegu, andlegu og félagslegu skilyrði sem völ er á.
Helstu verkefni hjúkrunarfræðinga innan grunnskóla eru:

  • Skipulag og framkvæmd reglubundinna heilsufarsathugana og ónæmisaðgerða í samvinnu við heilsugæslulækna
  • Almenn heilbrigðisfræðsla og ráðgjöf um heilsuvernd
  • Stuðningur við börn með sértæk vandamál
  • Smáslysaþjónusta
  • Umsjón með lyfjagjöfum nemenda á skólatíma
  • Eftirlit með aðbúnaði nemenda

Einn grunnskóli er innan svæðis heilsugæslunnar og heildarfjöldi nemenda er ca 430 börn.
Skólahjúkrunarfræðingur er Stefanía Jónsdóttir, deildarstjóri.

Sjúkraþjálfun:
Sími: 426-7155, fax 426-7600 í Grindavík
e-mail: ingatirone@hss.is
Sjúkraþjálfun Ingu Tirone er sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfun og hefur aðsetur hjá Heilsugæslu Grindavíkur.
Yfirsjúkraþjálfari er Inga Tirone.

Tannlæknir:
Sími: 426-7321
Opið alla virka daga frá kl. 08:00 - 17:00
Guðmundur L. Pálsson tannlæknir hefur aðstöðu í álmu Heilsugæslunnar og veitir alla almenna tannlæknaþjónustu s.s. tannfyllingar, krónu- og brúarsmíði, heilgóma- og partagerð. Verið velkomin.


Neyðarnúmer: 112
Tímabókanir: 8:00-16:00
Skiptiborð: 422 0500
Fax: 421 2400
Netfang: hss@hss.is


17.08.2010
Nýr deildarstjóri í skólaheilsugæslu

12.08.2010
Nýir starfsmenn í GOSA

07.07.2010
Veglegar gjafir afhentar HSS

30.06.2010
Ársskýrsla HSS 2009

24.06.2010
Starfsemi á HSS í sumar



©2003 Heilbrigðisstofnun Suðurnesja | Skólavegi 6, 230 Reykjanesbæ | www.hss.is | hss@hss.is