Heilbrigðisstofnun Suðurnesja - Fréttir


Leita í:
Leitarorð:

Hreinsa | Leita 



 Starfsemi á HSS í sumar 24. júní 2010 

Hjúkrunar- og endurhæfingadeild heimahjúkrunar, A-deild:  Deildin lokar frá 4. júní til 30. ágúst.

Hand-og lyflækningadeild, D-deild: Dregið verður úr starfsemi þannig að frá 5. júlí til 16. ágúst verða 12 rúm í notkun í stað 21 rúms.

 

Fæðingadeild: Breyttar áherslur verða á fæðingardeild vegna lokunar á skurðstofu.  Allar konur í eðlilegri meðgöngu geta fætt á fæðingadeild HSS.  Konur sem eru í áhættumeðgöngu og þurfa að fara í gangsetningu þurfa að leita á aðra fæðingastaði. Fæðingadeildin verður lokuð vegna sumarleyfa frá föstudeginum 25. júní kl. 16 til mánudagsins 26. júlí kl. 8.  Að öðru leyti verður þjónustan með sama móti og hún hefur verið undanfarin ár. 

Mæðravernd: Óbreytt þjónusta

Ungbarnavernd: Vegna sumarfría falla niður heimavitjanir í júlí.  Foreldrum er bent á að koma með börnin á heilsugæslustöðina. Þroskaskoðanir 2 ½  og 4 ára barna verða ekki gerðar frá miðjum júní fram í miðjan ágúst.  Að öðru leyti verður þjónustan óbreytt. 


 

Til baka | Prentvæn útgáfa 


Neyðarnúmer: 112
Tímabókanir: 8:00-16:00
Skiptiborð: 422 0500
Fax: 421 2400
Netfang: hss@hss.is


17.08.2010
Nýr deildarstjóri í skólaheilsugæslu

12.08.2010
Nýir starfsmenn í GOSA

07.07.2010
Veglegar gjafir afhentar HSS

30.06.2010
Ársskýrsla HSS 2009

24.06.2010
Starfsemi á HSS í sumar



©2008 Heilbrigðisstofnun Suðurnesja | Skólavegi 6, 230 Reykjanesbæ | www.hss.is | hss@hss.is