Heilbrigðisstofnun Suðurnesja - Fréttir


Leita í:
Leitarorð:

Hreinsa | Leita 



 Konráð læknir dró þjóðfánann að húni 21. júní 2010 

Konráð Lúðvíksson, læknir í Keflavík dró þjóðfánann að húni við setningu 17. júní hátíðarhaldanna í Reykjanesbæ í dag. Það þykir mikill heiður að fá þetta hlutverk á þjóðhátíðardeginum og Konráð er vel að honum kominn eftir nærri þriggja áratuga þjónustu við Suðurnesjamenn á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Það var vel við hæfi að Konráð gat litið yfir á vinnustaðinn sinn um leið og hann dró stærsta fána landsins að húni en sjúkrahúsið er næsta hús við skrúðgarðinn í Keflavík. Árni Sigfússon, bæjarstjóri var lækninum til halds og trausts við athöfnina. 

Sjá nánar á vef Víkurfrétta: http://www.vf.is/Frettir/44949/default.aspx

Frétt fengin að láni af vef Víkurfrétta þann 17. júní 2010.

Til baka | Prentvæn útgáfa 


Neyðarnúmer: 112
Tímabókanir: 8:00-16:00
Skiptiborð: 422 0500
Fax: 421 2400
Netfang: hss@hss.is


17.08.2010
Nýr deildarstjóri í skólaheilsugæslu

12.08.2010
Nýir starfsmenn í GOSA

07.07.2010
Veglegar gjafir afhentar HSS

30.06.2010
Ársskýrsla HSS 2009

24.06.2010
Starfsemi á HSS í sumar



©2008 Heilbrigðisstofnun Suðurnesja | Skólavegi 6, 230 Reykjanesbæ | www.hss.is | hss@hss.is