|
Hjúkrunar- endurhæfingadeild heimahjúkrunar, A-deild: Deildin lokar frá 4. júní til 30. ágúst.
Hand-og lyflækningadeild, D-deild: Dregið verður úr starfsemi þannig að frá 5. júlí til 16. ágúst verða 12 rúm í notkun í stað 21 rúms.
Fæðingadeild: Breyttar áherslur verða á fæðingardeild vegna lokunar á skurðstofu. Allar konur í eðlilegri meðgöngu geta fætt á fæðingadeild HSS. Konur sem eru í áhættumeðgöngu og þurfa að fara í gangsetningu þurfa að leita á aðra fæðingastaði. Fæðingadeildin verður lokuð vegna sumarleyfa frá föstudeginum 25. júní kl. 16 til mánudagsins 26. júlí kl. 8. Að öðru leyti verður þjónustan með sama móti og hún hefur verið undanfarin ár.
Mæðravernd: Óbreytt þjónusta
Ungbarnavernd: Vegna sumarfría falla niður heimavitjanir í júlí. Foreldrum er bent á að koma með börnin á heilsugæslustöðina. Þroskaskoðanir 2 ½ og 4 ára barna verða ekki gerðar frá miðjum júní fram í miðjan ágúst. Barnalæknar verða einnig í sumarfríi í júlí. Að öðru leyti verður þjónustan óbreytt.
|