|
SMS áminning hefur verið virkjuð í sjúklingakerfinu SÖGU á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Þeir skjólstæðingar sem bóka tíma á HSS geta frá og með deginum í dag óskað eftir að fá sms áminningu vegna tímabókunar, í farsímanúmer sitt.
Skjólstæðingar HSS, sem hafa óskað eftir að fá sms áminningu, fá sent SMS skilaboð einum degi fyrir bókaðan tíma og sendir SÖGU kerfið skilaboðin út kl. 10 á morgnanna.
Þetta er mikil bót fyrir stofnunina og bætir þjónustu við skjólstæðinga mikið.
|