Heilbrigðisstofnun Suðurnesja - Hlutverk og stefna


Leita í:
Leitarorð:

Hreinsa | Leita 


 Hlutverk og stefna

Heilsugæslusvið HSS sinnir heilbrigðisþjónustu við heilbrigða og sjúka sem ekki dveljast á sjúkrahúsum, sbr. 19.gr. heilbrigðislaga nr. 97/1990 og heilbrigðisáætlun heilbrigðisráðuneytisins. Heilsugæslan skal tryggja grunnþjónustu í heilsugæslu á starfssvæðinu, s.s. almenna læknis- og hjúkrunarþjónustu, vakt- og bráðaþjónustu og forvarnarstarf.   Áherslu skal leggja á málaflokka eins og áfengis- og tóbaksvarnir, slysavarnir, geðheilbrigði, hjarta- og heilavernd, næringarráðgjöf, mataræði og krabbameinsvarnir. Þá er rétt að undirstrika mikilvægi þess að efla heimaþjónustu enn frekar og hafa þannig að markmiði að skjólstæðingar, bæði aldraðir og sjúkir, geti dvalið heima hjá sér sem allra lengst.
Stefna HSS er að veita Suðurnesjabúum lögbundna heilsugæslu í heimabyggð, að unnt sé að bóka tíma samdægurs á heilsugæslu ef skjólstæðingur óskar þess og að biðtími á biðstofu eftir bókuðum tíma verði ekki meira en 30 mínútur að jafnaði.

Undir sjúkrahússvið fellur sjúkrahúsþjónusta sem greinist í lyflækningar og endurhæfingaþjónustu annars vegar og skurðlækningar og fæðingarhjálp hins vegar. Sjúkrahúsið er ætlað sjúku fólki til vistunar, þar sem læknishjálp, hjúkrun og allur aðbúnaður er í samræmi við reglugerðir og lög um heilbrigðisþjónustu. Nú er starfrækt 25 rúma öldrunardeild í Grindavík í tengslum við sjúkrahúsið og 21 rúma legudeild á 2.hæð. Á fæðinga- og kvensjúkdómadeild eru 8 rúm. Í september 2003 var farið af stað með dagdeildarstarfsemi í 10 rúmum fyrir hand- og lyflækningar.

Sjúkrahúsið hefur á að skipa fjölmörgum sérgreinalæknum bæði í skurðlækningum og lyflækningum. Þá er rekin slysa- og bráðamóttaka á sjúkrahússviði í nánum tengslum við heilsugæslusvið.
Stefna HSS er að uppfylla 70-80% af þjónustuþörf íbúa Suðurnesja fyrir sjúkrahúsþjónustu. Sérhæfð og flókin þjónusta verður eftir sem áður sótt til Landspítala- háskólasjúkrahúss.


Neyðarnúmer: 112
Tímabókanir: 8:00-16:00
Skiptiborð: 422 0500
Fax: 421 2400
Netfang: hss@hss.is


21.06.2010
Konráð læknir dró þjóðfánann að húni

15.06.2010
SMS áminningar í sjúklingakerfi HSS

10.06.2010
Landspítali og Heilbrigðisstofnun Suðurnesja semja um fæðingaþjónustu

31.05.2010
Starfsemi HSS í sumar

28.05.2010
AA fundur á D deild HSS



©2003 Heilbrigðisstofnun Suðurnesja | Skólavegi 6, 230 Reykjanesbæ | www.hss.is | hss@hss.is